Fréttir

Afmælisdagur að kveldi kominn...

Hún var snögg á fætur í morgun hún Fönn afmælisstúlka og frekar spennt í tilefni dagsins mætti hún með litla kleinuhringi fyrir bekkjarfélagana sína í skólann. Mrs. Stokes á sama afmælisdag og Fönn finnst það frekar mikill heiður að eiga afmæli á sama degi og kennarinn. Ugla og Egill komu fljót yfir eftir skóla með gjöf dagsins og svo var farið út í frisbí. Við fórum svo út að borða mæðgurnar, Fönn valdi að fara á Maurya sem er frábærlega góður indverskur veitingastaður hér í nágrenninu. Eftir afar ljúffengan kvöldverð kom ég afmælisstúlkunni á óvart og bauð henni á leik/dans/tónlistar-sýningu að kínverskum sið. Það var algjörlega frábær kvöldstund sem við áttum með Shen Yun Performing Art hópnum, flottur dans, tónlist, söngur og ótrúlega litríkir og fallegir búningar. Hópurinn byggir á aldagömlum kínverskum hefðum í atriðum sínum og við skemmtum okkur alveg stórvel. Skemmtilegt að brjóta aðeins upp vestræna lífið og fá innsýn eina kvöldstund í langa menningarsögu Kína. Fönn var upprifinn af öllu sem fyrir augu bar og mjög sátt við daginn þrátt fyrir pabba og Dögunar-leysi.


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning