Fönn konsertmeistari

Það var mikill spenningur hér í dag því Fönn var að fara að spila á vortónleikum í Chan Center í kvöld. Það eru nokkrir skólar hér í nágrenninu með svokallað strengjasveita-prógram og í kvöld komu yfir 500 börn saman og spiluðu á tónleikum í glæsilegu tónlistarhúsi UBC og sést hér á myndinni til hliðar (sami staður og SigurRós spilaði í). Fönn hefur verið að spila á lág-fiðlu í vetur og tók galvösk þátt í tónleikahaldinu og spilaði með fjórðu bekkjar strengja-hljóðfæra-nemendum. Uglu og Agli var boðið með í fjarveru Halls og Dögunar og við skemmtun okkur konunglega sem áhorfendur. Egill var hrifnastur af Eine kleine nachtmusic sem sjöunda bekkja sveitin spilaði og svo voru auðvitað öll 3 lögin sem Fönn spilaði í í uppáhaldi. Í lokin spiluðu svo allir nemendurnir saman og þau sem voru lengst komin fóru heldur hratt fyrir þau nýbyrjuðu og Fönn sagðist hafa verið í mesta basli með að halda í við þau. Svaka gaman og Fönn heldur ánægð með sig og frammistöðuna.
Já og svo skín bara sólin á okkur dag eftir dag en annars teljum við óþreyjufullar dagana þangað til Dögun og Hallur koma. Mikið verður ótrúlega notalegt að fá þau aftur heim. Já og gleðilegan 1. maí.


