Góðir dagar í Whistler
mánudagur 16.feb.09 04:46 - Lestrar 47 - Athugasemdir (1)

Við áttum dásamlega daga í Whistler. Sólin skein á okkur og færið gott. Hallur og Fönn brettuðu af krafti í ólympíuleikabrekkunum en við Dögun tókum lífinu með ró, fengum okkur göngutúra og tókum púlsin á stemmningunni í Wistler Village, sem var góð eins og alltaf. Við heimsóttum að sjálfsögðu Whistler bókasafnið, það fór reyndar minna fyrir lærdómi en upphaflega var áætlað. Fönn er farin að renna sér hraðar niður brekkurnar en Hallur, sem fylgir móður á eftir :-) íbúðin sem við leigðum var frábær, lítil og kósý og í göngufæri við Creekside gondólann. Bara snilld.
Sólin hefur skinið á okkur hér um helgina og við njótum hennar og hvers annars. Reading break í UBC þessa vikuna og mikil plön uppi um massívan lestur og helst skrif...

