Fréttir

Gúrka

Þær eru kannski táknrænar gúrkurnar hér fyrir neðan um þá almennu gúrku sem er í fréttaflutningi héðan. Allt gott og hið daglega líf rúllar áfram. Við ákváðum á síðustu stundu (núna áðan) að leigja okkur íbúð upp í Whistler og skella okkur upp í fjöllin í fyrramálið. Það verður notalegt að komast úr borginni og til fjalla. Við vorum hálfgerðir áskrifendur að íbúð uppfrá í fyrravetur en hún fór í langtímaleigu núna í vetur og hefur því ekki verið í boði. Við erum því að fara á nýjan stað og það verður spennandi að breyta til. Hallur og Fönn verða dugleg að renna sér en við Dögun ætlum að vera í barnabrekkunni og á bókasafninu. Stundum gott að vera í skóla og hafa sveigjanleika á virkum dögum en það verður eitthvað spennandi lestrarefni tekið með.

Annars er ég mjög glöð þessa dagana ég fann skiptinemafjölskylduna mína á Puerto Rico í gegnum facebook. Það er ótrúlega gaman að komast í samband við þau aftur eftir margra, margra ára hlé. Væri eiginlega frekar til í að vera á leiðinni í sólina í Karabíahafinu heldur en í snjóinn í Whistler en það er önnur saga !



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning