Jibbííí

Loksins er kona búin að taka við lyklavöldunum í forsætisráðneytinu. Það finnst okkur hér mjög gleðilegt, reyndar var Fönn pínulítið svekkt því að hún ætlaði að verða fyrsti kven-forsætisráðherrann, en við gleðjumst þó yfir því að búið er að gefa gott fordæmi og undirbúa jarðveginn. Ég vil þó að sama tilefni benda á að það er árið 2009 og hreint með ólíkindum að þetta hafi ekki verið skrifað í sögubækurnar nú þegar. Það segir mér bara að hlutirnar séu að gerast of hægt og það má líka benda á að hlutur kvenna á þingi er einungis um 30% þannig að það er eins gott að hafa það bak við eyrun að það er mjög langt í land ennþá hvað jafnrétti varðar. En það er frábært að hafa góðar fyrirmyndir og ég ætla ekki að gera lítið úr því en er hrædd um að staðan verði ofmetin með tilkomu Jóhönnu í forsætisráðneytið. Svo líst mér alveg svakalega vel á nýjann menntamálaráðherra, hef mikla trú á Katrínu sem er sérlega klár og flott kona. Verst hvað er stuttur tími til að gera breytingar en ég vona sannarlega að þjóðin hafi 'vit' á að gefa þessu góða fólki brautargengi í kosningunum í lok apríl.
Annars fögnuðum við líka nýju kínversku ári í dag með því að fara í kínahverfið ásamt góðum vinum að horfa á skrúðgöngu að kínverskum sið. Það reyndar slyddaði á okkur - það er með ólíkindum hvað er mikið kaldara hér núna en í fyrravetur en ég trúi því staðfastlega að nú fari að koma vor í loftið. Ár nautsins er nú tekið við og við klæddumst rauðu mæðgur og vonum að það færi okkur gæfu á þessu nýja ári.

