Sumarfréttir

Við erum bara nokkuð spakar mæðgurnar hér í nýkomnu sumrinu í Vancouver. Það brast á með sól og sumri í gærog hitinn fór upp í 19 gráður í gær og í dag. Húsfreyjan gat ekki á sér setið og settist út með bók íhönd í dag og það skilaði sér í fyrsta sólroða ársins á annars hvítri húðinni. Brenn sérlega auðveldlega,notaði samt sólarvörn. Brann reyndar á vinstri öxlinni sem mér finnst skemmtileg tilviljun í ljósi komandi kosninga. En það er gott aðfá sólina og hitann og það spáir vel áfram. Borgin er nú í fullum kirsuberjatrjáa-blóma og er hreint yndisleg. Ég fæsvakalega heimflutnings-bakþanka þegar ég keyri hér um bleik og hvít blómstrandi hverfin. En ætli hver staður hafi ekki sinn sjarma og égþarf bara að finna sjarmann í svifrykinu á Akureyri!!
Við erum farnar að sakna Halls og Dögunar alveg ótrúlega mikið, þetta er bara of langur tími. En við höfum reyndar nóg fyrir stafni ogumkringdar góðum vinum. Svo erum við enn að uppgötva nýja staði hér í borginni, Kristy vinkona okkar fór með okkur ífrábæra ísbúð áðan sem falinn er inn í iðnaðarhverfi og býður upp á 118 ístegundir. Það var ansi erfitt aðgera upp hug sinn þegar kom að ísvali, og smökkunin sem boðið er upp á eiginlega frekar til þess fallinn að gera valið erfiðara. Svo ernóg að gera við lærdóm hjá okkur báðum og ég held að ég sér svei mér þá bara komin á sporiðmeð MA ritgerðina og kannski ekki seinna væna :-)
Svo vil ég minna lesendur á að kjósa af skynsemi...

