mánudagur 27.apr.09 07:28 - Lestrar 170 -
Athugasemdir (0)

Helstu gleðitíðindin eftir kosningaúrslit gærdagsins er aukinn hlutur kvenna á Alþingi Íslendinga. Loksins eru konur orðnar yfir 40%
þingfólks, þó fyrr hefði verið. Þetta er nú frekar einfalt reiknisdæmi, það sem einfaldlega þurfti til að leiðrétta
hlut kvenna á Alþingi var afhroð Sjálfstæðisflokksins. Ég gleðst yfir hvoru tveggja og reyni nú góðir menn og konur að halda
því fram að Sjálfstæðisflokkurinn sé jafnréttissinnaður flokkur, svo er einfaldlega ekki og hefur aldrei verið. Það er mikið
gleðiefni að þrír flokkar á Alþingi hafi jafnt kynjahlutfall í sínum þingflokkum. Ég er svo mjög sátt og
ánægð með sigur VG - það er alveg ný tilfinning fyrir vinstri femínista að hafa verið bara þokkalega "mainstream" í kjörklefanum
en sannarlega skemmtileg tilfinning. Ég vona bara innilega að ríkistjórnarflokkunum takist að leysa evrópumálin farsællega og halda áfram
uppbyggingu velferðar byggðri á norrænni fyrirmynd. Ef ekki yrðu breytingar á hinu pólitíska landslagi sögðumst við hjónin ekki
ætla að flytja heim með stúlkurnar okkar - ég túlka þessi góðu úrslit vinstri flokkanna því þannig að
þjóðin hafi kosið okkur fjölskylduna heim !! Sjáumst í ágúst.